Close-up of a dance couple's legs, showing a woman's feet in high heels and fishnet stockings, and a man's feet in dress shoes, in a dance studio with wooden floors and large windows.

Dansstílarnir sem við kennum

Salsa LA Style

Salsa LA Style er líflegur og kraftmikill dansstíll sem einkennist af mikilli orku, snöggum snúningum og skemmtilegri partnerwork. Dansinn er dansaður On1, sem þýðir að grunnhreyfingin hefst á fyrsta slagi tónlistarinnar. LA Style byggir mikið á svokölluðum crossbody leads, þar sem dansararnir hreyfa sig eftir ákveðinni línu og leiða hvor annan í gegnum fjölbreyttar hreyfingar og snúninga.

Stíllinn hentar bæði byrjendum og lengra komnum og gefur mikið svigrúm til að þróa eigin stíl, líkamsbeitingu og tengingu við tónlistina.

The national flag of Cuba, with five alternating blue and white stripes, a red triangle on the hoist side, a white star inside the triangle.

Rueda de Casino

Rueda de Casino er einstaklega skemmtileg og félagsleg tegund af kúbverskum salsa þar sem nokkur pör dansa saman í hring. Einn dansari, caller eða líder, kallar upp mismunandi hreyfingar og öll pörin framkvæma þær samtímis.

Það sem gerir Rueda sérstaklega skemmtilega er að dansfélagarnir skipta reglulega um maka þegar ákveðin köll eru gefin. Þannig verður dansinn bæði hraður, óútreiknanlegur og fullur af hlátri og orku.

Rueda er frábær leið til að læra kúbverska salsa, bæta leiðslur og fylgni og síðast en ekki síst — kynnast nýju fólki og dansa saman sem hópur.

Flag of the Dominican Republic with red, white, and blue horizontal stripes and the national coat of arms in the center.

Bachata

Bachata er dans frá Dóminíska lýðveldinu sem hefur á síðustu árum notið mikilla vinsælda um allan heim. Dansinn er mjúkur, rómantískur og taktviss og leggur mikla áherslu á tengingu milli dansfélaga og tónlistina.

Í tímunum lærum við grunnspor, leiðslur, snúninga og mismunandi hreyfingar sem gera dansinn skemmtilegan og frjálsan. Bachata er auðlærð og hentar því vel fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í dansi, en býður jafnframt upp á mikla möguleika fyrir þá sem vilja kafa dýpra í stíl, musicality og líkamsbeitingu.