Dansaðu með okkur!

Salsa North var stofnað í janúar 2023. Síðan þá höfum við haldið fjölda námskeiða á fjölmörgum getustigum. Við kennum þrjá dansstíla: Salsa LA Style, Bachata og Rueda de Casino. Við bjóðum einnig upp á skipulögð hópefli og einkatíma ásamt því að bjóða Akureyringum og gestum upp á regluleg ókeypis danskvöld í samstarfi við Vamos.

Group of women hugging and smiling in a store with pink bunting hanging overhead.

Á döfinni!

  • salsakvöld

    Ókeypis prufutími í salsa & opið danskvöld

    1. október, 2026, Kl. 20.00-22.30

    Efri hæðin á Vamos, Ráðhústorgi á Akureyri.

    Í þetta sinn verður boðið upp á ókeypis kynningartíma í salsa kl. 20.00-20.30.

    Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.

  • danskvöld á vamos

    Salsa & Bachata danskvöld

    15. október, 2026. Kl. 20.00-22.30

    Efri hæðin á Vamos, Ráðhústorgi á Akureyri.

    Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.

    Hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu!

  • nýtt námskeið fyrir byrjendur

    8 skipta námskeið í salsa fyrir byrjendur hefst 5. okt!

    5 október, 2026

    Kennt er á mánudögum kl. 20.00-21.15 í Steps Dancecenter í Sunnuhlíð á Akureyri. Athugið að ekki er kennsla þann 26. okt vegna vetrarfrís. Það þarf ekki að skrá sig með félaga.

    Verðið er 22.000 kr. á mann. Svo má ekki gleyma að námskeiðin okkar eru styrkhæf hjá flestum stéttarfélögum. Námskeiðið kenna þær Arna Sif og Elísabet Ögn. Hægt er að skrá sig eða fá frekari upplýsingar með að senda tölvupóst á salsanorth@outlook.com

    Hlökkum til að sjá ykkur!

  • salsakvöld

    Salsa & Bachata danskvöld

    29. október, 2026. Kl. 20.00-22.30

    Efri hæðin á Vamos, Ráðhústorgi á Akureyri.

    Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.

    Hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu!

  • workshop dagur

    Workshop dagur fyrir framhaldsnemendur

    Laugardagur 7. nóvember 2026

    Kl. 13-14 Lady style

    Kl. 14-15 Footwork

    Kl. 15-16 LA Style í pörum

    Stakur tími kostar 4000 kr. Ef tveir eru teknir saman þá kostar það 7000 kr. Ef allir þrír eru teknir þá kostar það 9000 kr. Skráning í gegnum salsanorth@outlook.com

  • Laugardags danskvöld á Vamos

    Laugardags danskvöld á Vamos

    Laugardagur 7. nóvember 2026

    Efri hæðin á Vamos, Ráðhústorgi á Akureyri.

    Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.

    Hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu!

  • salsakvöld

    Salsa & Bachata danskvöld

    12. nóvember, 2026. Kl. 20.00-22.30

    Efri hæðin á Vamos, Ráðhústorgi á Akureyri.

    Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.

    Hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu!

  • danskvöld á Vamos

    Salsa & Bachata danskvöld

    26. nóvember, 2026. Kl. 20.00-22.30

    Efri hæðin á Vamos, Ráðhústorgi á Akureyri.

    Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.

    Hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu!

  • jóladanskvöld

    Jólaball & danskvöld nr. 100! frá upphafi

    Laugardagur 11. desember 2026

    Síðasta danskvöld ársins er jafnframt okkar hundraðasta á Vamos frá því við hófum starfsemi árið 2024!

    Við fögnum því í jólafíling og höldum alvöru jóla danskvöld í Grande salnum á Vamos.

    Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.

    Hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu í jólaskapi!

Námskeið framundan

People dancing in a dance studio with mirrors on the wall, holding hands and practicing dance steps.

8 skipta byrjendanámskeið í salsa hefst 5. október 2026

22.000 kr. á mann

Þetta er okkar klassíska grunnnámskeið í salsa í pörum. Stíllinn heitir salsa á línu. Það er ekki nauðsynlegt að skrá sig með dansfélaga. Kennd eru grunnatriði í salsa og paradansi. Námskeiðið hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu dansspor.

Kennslan fer fram í Steps Dancecenter í Sunnuhlíð á Akureyri á Mánudögum kl. 20.00-21.15. Námskeiðið er átta skipti. Athugið að engin kennsla er þann 26. október vegna vetrarfrís.

A group of people in casual and semi-formal clothing are hugging and dancing in a spacious, well-lit room with wooden floors.

5 skipta Rueda de Casino framhaldsnámskeið hefst 5. október 2026

14.000 kr. á mann

Námskeiðið hentar þeim sem eru með grunn í kúbverskum hringdansi eða eru með góða færni í salsa.

Kennslan fer fram í Steps Dancecenter í Sunnuhlíð á Akureyri á Mánudögum kl. 20.00-21.15. Námskeiðið er fimm skipti. Athugið að engin kennsla er þann 26. október vegna vetrarfrís.

People dancing in a dance studio with mirrors, some with arms raised, in a black and white color scheme.

4 skipta Bachata námskeið fyrir lengra komna

Námskeiðið hentar þeim sem eru með grunn í Bachata.

Kennslan fer fram í Steps Dancecenter í Sunnuhlíð á Akureyri á Mánudögum kl. 20.00-21.15. Námskeiðið er fjögur skipti.

12.000 kr. á mann
People dancing salsa in a dimly lit room with a wooden floor, dressed in colorful clothes. The words "Salsa North" and "Akureyri" appear in the bottom right corner.

Opinn Social danstími

Síðasti tími annarinnar er opinn social danstími. Sameiginleg upphitun og footwork undir handleiðslu kennarara. Síðan er dansað saman og kennari stýrir skiptingu milli dansfélaga. Hægt er að fá aðstoð með spor og tækni hjá kennara.

1.500 kr. á mann

Hvað segja nemendur Salsa North?

Að læra salsa hjá Salsa North er búið að vera virkilega skemmtileg upplifun. Flottir kennarar og svo kynnist maður svo frábæru fólki.

María Sigurlaug Jónsdóttir & Theódór Sölvi Haraldsson 

Great energy and wonderful teachers. It was a great adventure and I hope to come again in the future. I wholeheartedly reccomend it. Thank you and see you soon!

Jowita Wasilewska

It was really good idea to start salsa classes. Always looking forward to learn something new. Group is amazing and have really great energy. I really recommend! It can change your life.

Anna Wilicka

Við mælum svo sannarlega með salsanámskeiðunum hjá Salsa North. Gleði, gaman, fagmennska og fjör einkenna danstímana. Frábærir kennarar og skemmtilegt samfélag. Lífið er einfaldlega betra með dass af salsa!

Helga Harðardóttir & Sveinn Sverrisson

Námskeiðin eru vel uppsett og eitthvað fyrir alla. Félagsskapurinn er frábær og kennararnir dásamlegir. Mæli 100% með!

Lilja Guðmundsdóttir

Námskeiðin hjá Salsa North hafa gefið mér svo mikla gleði. Skemmtileg hreyfing, dásamlegur félagsskapur og yndislegir kennarar. Mæli klárlega með!

Thorunn Kristin Sigurdardottir

Latneskir dansar Salsa og Bachata eru frábær líkamsrækt undir fagmannlegri leiðsögn Salsa North. Salsa samfélagið er ekki síðra, en þar er öllum tekið hlýlega á opnu danskvöldunum annan hvern fimmtudag.

Björk Sigurgeirsdóttir

Ég bjóst aldrei við því að dans yrði mitt helsta áhugamál þegar ég byrjaði minn fyrsta tíma í salsa. Það er ótrúlega gefandi að upplifa framfarir í eigin færni og takast á við áskoranir í uppbyggilegu umhverfi. Það gera allir mistök í lærdómsferlinu en það er hluti af því að læra nýja færni og þegar maður sigrast á þeirri hræðslu og getur brosað yfir því, þá eru allir vegir færir.

Heiðar Örn Hönnuson

Fylgdu okkur á facebook og Instagram!

Group of people dancing in a studio with mirrored wall and wooden floor.
People dancing in a dimly lit nightclub with red lighting, neon signs, and a wooden floor.
People dancing and socializing in a dimly lit nightclub with purple LED lighting on the ceiling.
A couple dancing under colorful disco lights in a lively indoor setting, with string lights hanging from the ceiling and people in the background.