Salsa North er dansskóli og samfélag dansara á Akureyri

Salsa North var stofnað í janúar 2023 af Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur. Starfsemin hófst með byrjendanámskeiðum í salsa í húsnæði Steps Dancecenter í Sunnuhlíð. Fljótlega hófust vikuleg salsakvöld á Vamos á Ráðhústorgi.

Arna Sif Þorgeirsdóttir byrjaði að kenna hjá Salsa North haustið 2023. Elísabet Ögn og Arna Sif sjá nú saman um kennslu og rekstur Salsa North.

Dansstílarnir sem kenndir eru hjá Salsa North eru Salsa, Bachata og Rueda de Casino. Hægt er að lesa nánar um dansstílana HÉR.

Danskvöldin á Vamos er haldin annan hvern fimmtudag allt árið um kring nema rétt yfir hásumarið og yfir jól og áramót. Hægt er að sjá yfirlit danskvöldanna og annarra viðburða HÉR.

Salsa North hefur einnig staðið fyrir fjölda viðburða og pop up námskeiða þar sem gestakennarar að sunnan eða erlendis frá hafa komið og haldið námskeið og viðburði. Danssamfélagið hefur vaxið og dafnað frá stofnun skólans og við tökum ávallt vel á móti nýjum félögum.

Group of people sitting at a long table in a restaurant with dim lighting and purple neon accents, smiling and enjoying their meal.
A woman with long curly red hair wearing a black T-shirt with 'SALSA NORTH' written on it, smiling against a light pink background.

Konurnar á bak við

Salsa North

Arna Sif Þorgeirsdóttir

Arna hefur dansað frá unga aldri og lagt stund á salsa síðan 2016. Hún hefur yfir áratuga reynslu af danskennslu og starfar einnig sem danskennari hjá Steps Dancecenter á Akureyri. Arna Sif kom í Salsa North teymið sama ár og skólinn opnaði og hefur hún sinnt kennslu við skólann allar götur síðan.

A woman with long brown hair wearing a black T-shirt standing against a light pink background.

Elísabet æfði ballet og samkvæmisdans í æsku. Á fullorðinsárum kynntist hún suðrænu dönsunum, salsa, bachata og tangó. Hún hefur dansað salsa víðsvegar um heiminn síðan 2005 með hléum. Árið 2023 stofnaði hún Salsa North og hefur hún sinnt kennslu hjá Salsa North frá upphafi.

Elísabet Ögn Jóhannsdóttir

Hvað segja nemendur Salsa North?

Að læra salsa hjá Salsa North er búið að vera virkilega skemmtileg upplifun. Flottir kennarar og svo kynnist maður svo frábæru fólki.

María Sigurlaug Jónsdóttir & Theódór Sölvi Haraldsson 

Great energy and wonderful teachers. It was a great adventure and I hope to come again in the future. I wholeheartedly reccomend it. Thank you and see you soon!

Jowita Wasilewska

It was really good idea to start salsa classes. Always looking forward to learn something new. Group is amazing and have really great energy. I really recommend! It can change your life.

Anna Wilicka

Við mælum svo sannarlega með salsanámskeiðunum hjá Salsa North. Gleði, gaman, fagmennska og fjör einkenna danstímana. Frábærir kennarar og skemmtilegt samfélag. Lífið er einfaldlega betra með dass af salsa!

Helga Harðardóttir & Sveinn Sverrisson

Námskeiðin eru vel uppsett og eitthvað fyrir alla. Félagsskapurinn er frábær og kennararnir dásamlegir. Mæli 100% með!

Lilja Guðmundsdóttir

Námskeiðin hjá Salsa North hafa gefið mér svo mikla gleði. Skemmtileg hreyfing, dásamlegur félagsskapur og yndislegir kennarar. Mæli klárlega með!

Thorunn Kristin Sigurdardottir

Latneskir dansar Salsa og Bachata eru frábær líkamsrækt undir fagmannlegri leiðsögn Salsa North. Salsa samfélagið er ekki síðra, en þar er öllum tekið hlýlega á opnu danskvöldunum annan hvern fimmtudag.

Björk Sigurgeirsdóttir

Ég bjóst aldrei við því að dans yrði mitt helsta áhugamál þegar ég byrjaði minn fyrsta tíma í salsa. Það er ótrúlega gefandi að upplifa framfarir í eigin færni og takast á við áskoranir í uppbyggilegu umhverfi. Það gera allir mistök í lærdómsferlinu en það er hluti af því að læra nýja færni og þegar maður sigrast á þeirri hræðslu og getur brosað yfir því, þá eru allir vegir færir.

Heiðar Örn Hönnuson