Gjafabréf
Gefðu dans, gleði og góða upplifun!
Vantar þig gjöf handa einhverjum sem á allt?
Með gjafabréfi frá Salsa North gefur þú ekki bara gjöf heldur tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hreyfa sig, kynnast fólki og njóta tónlistar og dansins.
Gjafabréfin geta nýst á dansnámskeið eða í einkatíma og eru frábær gjöf fyrir dansáhugafólk jafnt sem algjöra byrjendur. Hægt er að gefa námskeið að eigin vali, einkatíma eða jafnvel ákveðna upphæð sem gengur upp í hvaða þjónustu sem er.
Gjafabréfin koma einnig í jólabúningi (eins og á myndinni).
Gjafabréfin eru send rafrænt.
Til að panta gjafabréf þá endilega fyllið út formið hér að neðan eða hafið samband við okkur í gegnum netfangið salsanorth@outlook.com