Námskeið í boði

Hér er listi yfir þau námskeið sem eru framundan hjá okkur.

Skráning fer fram í gegnum netfangið salsanorth@outlook.com

eða með því að fylla út eyðublaðið neðst á síðunni.

People dancing in a dance studio, holding hands, with some pairs spinning around, and others practicing moves, mirrored wall reflecting their activity.

8 skipta byrjendanámskeið í salsa hefst 5. október 2026

22.000 kr. á mann

Þetta er okkar klassíska grunnnámskeið í salsa í pörum. Stíllinn heitir salsa á línu. Það er ekki nauðsynlegt að skrá sig með dansfélaga. Kennd eru grunnatriði í salsa og paradansi. Námskeiðið hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu dansspor.

Kennslan fer fram í Steps Dancecenter í Sunnuhlíð á Akureyri á Mánudögum kl. 20.00-21.15. Námskeiðið er átta skipti. Athugið að engin kennsla er þann 26. október vegna vetrarfrís.

A group of eight people holding each other tight in the middle of a spacious indoor room with wooden flooring and white walls, possibly dancing or celebrating together.

Rueda de Casino (5 skipti) framhaldsstig, hefst 5. okt

14.000 kr. á mann

Námskeiðið hentar þeim sem eru með grunn í kúbverskum hringdansi eða eru með góða færni í salsa.

Kennslan fer fram í Steps Dancecenter í Sunnuhlíð á Akureyri á Mánudögum kl. 20.00-21.15. Námskeiðið er fimm skipti. Athugið að engin kennsla er þann 26. október vegna vetrarfrís.

Women participating in a dance class in front of a large mirror, with some women raising their arms and others in a dance pose.

4 skipta Bachata námskeið fyrir lengra komna

Námskeiðið hentar þeim sem eru með grunn í Bachata.

Kennslan fer fram í Steps Dancecenter í Sunnuhlíð á Akureyri á Mánudögum kl. 20.00-21.15. Námskeiðið er fjögur skipti.

12.000 kr. á mann
People dancing salsa on a wooden floor, with some wearing colorful skirts and others in jeans. The text 'Salsa North' and 'Akureyri' appears in the bottom right corner.

Opinn Social danstími

Síðasti tími annarinnar er opinn social danstími. Sameiginleg upphitun og footwork undir handleiðslu kennarara. Síðan er dansað saman og kennari stýrir skiptingu milli dansfélaga. Hægt er að fá aðstoð með spor og tækni hjá kennara.

1.500 kr. á mann

Skráðu þig til leiks!

Algengar spurningar

Close-up of a couple dancing tango in a studio, focusing on their legs and feet, with the woman wearing fishnet stockings and high heels, and the man in black shoes, with sunlight streaming through large windows.

Dansstílarnir sem við kennum

Salsa LA Style

Salsa LA Style er líflegur og kraftmikill dansstíll sem einkennist af mikilli orku, snöggum snúningum og skemmtilegri partnerwork. Dansinn er dansaður On1, sem þýðir að grunnhreyfingin hefst á fyrsta slagi tónlistarinnar. LA Style byggir mikið á svokölluðum crossbody leads, þar sem dansararnir hreyfa sig eftir ákveðinni línu og leiða hvor annan í gegnum fjölbreyttar hreyfingar og snúninga.

Stíllinn hentar bæði byrjendum og lengra komnum og gefur mikið svigrúm til að þróa eigin stíl, líkamsbeitingu og tengingu við tónlistina.

Flag of Cuba with red triangle, white star, and horizontal blue and white stripes.

Rueda de Casino

Rueda de Casino er einstaklega skemmtileg og félagsleg tegund af kúbversku salsa þar sem nokkur pör dansa saman í hring. Einn dansari, caller eða líder, kallar upp mismunandi hreyfingar og öll pörin framkvæma þær samtímis.

Það sem gerir Rueda sérstaklega skemmtilegt er að skipt er reglulega um dansfélaga þegar ákveðin köll eru gefin. Þannig verður dansinn bæði hraður, óútreiknanlegur og fullur af hlátri og orku.

Rueda er frábær leið til að læra kúbverskt salsa, bæta tækni, dansfærni og síðast en ekki síst, kynnast nýju fólki og dansa saman sem hópur.

Flag of the Dominican Republic with red, white, and blue colors and the national coat of arms in the center.

Bachata

Bachata er dans frá Dóminíska lýðveldinu sem hefur á síðustu árum notið mikilla vinsælda um allan heim. Dansinn er mjúkur, rómantískur og taktviss og leggur mikla áherslu á tengingu milli dansfélaga og tónlistarinnar.

Í tímunum lærum við grunnspor, spor, snúninga og mismunandi hreyfingar sem gera dansinn skemmtilegan og frjálsan. Bachata er auðlærð og hentar því vel fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í dansi, en býður jafnframt upp á mikla möguleika fyrir þá sem vilja kafa dýpra í stíl, musicality og líkamsbeitingu.